Já vá það er langt síðan ég hef bloggað...
Maður er bara orðin eitthvað svo latur við þetta, Það hefur líka ekki annað komist að síðustu vikur heldur en vinnan og próflestur, og hver nennir að lesa um það

En ég er allavega búin í prófunum núna og gekk bara frekar vel. Ég var bara í 2 prófum af því að ég var bara að taka 2 áfanga og ég náði sem sagt 7.5 í fyrra prófinu sem ég var rosa sátt með en svo var seinna prófið ekki fyrr en 14. mai þannig að ég er ekki ennþá búin að fá útúr því en þar sem mér fannst ég ganga frekar vel þá er ég bjartsýn á að ég nái þessu. En það er ekkert smá notalegt að vera búin í skólanum og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að vera ekki að læra hehe... Ég ætla svo sennilega ekki í skólann næsta haust af því að ég ætla að fara eitthvað út og er ennþá að skoða hvað ég get gert af því að mig langar í heimsreisu og taka bara bakpokann og fara og skoða nokkur lönd en það eina sem mig vantar er ferðafélagi af því að svona ferð er ekki beint eitthvað sem maður gerir einn. En hvað sem verður úr þessu að þá er alveg pottþétt að ég ætla að fara til Söru minnar sem ætlar að fara til Nýja-Sjálands næsta vetur og ég ætla að hitta hana aðeins og hver veit nema að maður verði bara þar í nokkra mánuði... Það væri allavega ekki leiðinlegt

Talandi um útlönd að þá er ég að fara í 5 daga ferð í ágúst. Ég og Berglind Ósk ætlum sko að skella okkur til Írlands og skemmta okkur í Dyflinni

Þessi ferð var nú eiginlega bara ákveðin í flippi en þegar við gátum fengið flugfarið á 10.000 kall fram og til baka þá er nú ekki hægt að sleppa því :þ svo er bara að finna eitthvað gott, ódýrt hostel á góðum stað í bænum og taka svo almennilegt djamm á þetta með Írunum

Ég er bara farin að hlakka svo til að ég er að farast hehe, en það er gaman að hafa eitthvað til að hlakka til í sumar..
Ég held að þetta sumar verði mjög skemmtilegt (það er allavega ekki erfitt að toppa síðasta sumar

) en ég ætla sem sagt að vera í bænum og vinna hjá 66norður frá 9-6 virka daga og byrja sem sagt þar á morgun og svo er ég að vinna frá 10-4 annan hvern laugardag og er svo alltaf í fríi á sunnudögum sem er bara ljúft :þ
Svo er ýmislegt planað í sumar sko... Það er alltaf eitthvað að ske og þó að ég missi sennilega af Humarhátíðinni í fyrsta sinn síðan það var byrjað að halda hana (það er vinnuhelgi

) þá verður maður bara að sætta sig við það og hver veit nema að maður skelli sér bara á hestamannamót á laugardeginum eftir vinnu. Það er miklu styttra að keyra á Hellu. Ætli maður endi svo ekki á Grundódögum þetta árið, svona fyrst ég er í Reykjavíkinni. Ég held líka að sú helgi sé fríhelgi hjá mér þannig að ég efast stórlega um að ég faí að sleppa því að mæta hehe, en það ætti nú að vera gaman, það er orðið soldið langt síðan ég fór síðast

Svo er auðvitað reunionið hjá okkar elskulega bekk í ML sem verður að öllum líkindum 2 helgina í Júlí sem er bara snilld af því að þá er ég í fríi. Mér finnst æðislegt að það sé reynt að halda þessum hóp svona saman af því að þetta er náttla snilldarhópur og reunionið í fyrra var bara snilld

Ég er allavega farin að hlakka til.
Núna um helgina er svo Evrovision ef það fór fram hjá einhverjum... Reyndar byrjar það í kvöld en maður er nú ekki beint komin í gírinn strax hehe.. En aðalkeppnin á laugardaginn og ég vona að Ísland komist í hana af því að annars er ekkert gaman að horfa. En eitt sem er ennþá skemmtilegra við laugardaginn er að þá er útskriftarpartý hjá útskriftarárgangi 2006 og það verður bara gaman. Ég komst ekki í fyrra þannig að ég er spennt núna. Það á að vera Prom night þema og ég ætla að fara í fína kjólnum mínum sem ég var í á þorrablótinu hjá Þjóðbrók og svo fæ ég sennilega neglur hjá henni Sirrý í vikunni og svo vona ég að ég nái að plata Júlíu til að gera eitthvað fínt við hárið á mér og kannski mála mig

Æ það er alltaf svo gaman að klæða sig svona upp. Ég hlakka allavega ýkt til

Æ ég held að þetta sé orðið gott í bili og ég skal reyna að vera duglegri að blogga kannski í sumar þó ég hafi lítið að segja

en bara svona til að halda lífi í síðunni og þá set ég kannski inn einhverjar myndir og svona... ef ég læra einhverntíma á það

En allavega
Þangað til næst
Adios